Food & Fun
Matarveisla Food and Fun verður haldin í Reykjavík dagana 25. febrúar til 1. mars 2026.
Okkur er sönn ánægja að taka á móti ítalska gestakokkinum Diletta Zenna frá Al Vecchio Convento.
Matseðill
Hörpuskel, wasapi, gúrka, grænt epli, cumin
Rækju & sítrus-dashi legið brioche brauð, eggjarauða, reykt avókadó
Peking style gljáð andabringa, kartöflu pappardelle, svört truffla
Graskers ravioli, miso-sósa, taleggio fondue, n’djua olía
Lambakóróna elduð í brúnuðu smjöri, rósaberja-purée, ristuð mjólk og kaffi soðgljái
Brioche brauð, rabarbari, formaggio di fossa ís
Verð 14.900 kr. á mann
Diletta Zenna fæddist árið 1989 í litlum bæ nálægt Feneyjum og hóf feril sinn sem konditor eftir að hafa klárað gráðu í félagsráðgjöf.
Matreiðsla hefur alltaf verið hluti af lífi hennar frá barnæsku, þökk sé ástríðu móður hennar.
Diletta valdi konditorgerð sem starfsferil eftir að hafa hitt Piergiorgio Siviero, matreiðslumann og eiganda Lazzaro 1915,
veitingastaðar í Pontelongo, Padua. Á þeim tíma þróaði hún með sér ást á deig og notkun grænmetis og bragðmikilla
hráefna í eftiréttagerð
ásamt því að læra matreiðslutækni.
Í dag starfar hún á Al Vecchio Concento, í Portico di Romagna, við hlið Matteo Cameli.